25.1.2012 | 01:48
Mit Romney borgar ekki skatt af launum sínum!!!
"..... Forsetinn gaf til kynna í dag, að hann muni á ný reyna að sannfæra Bandaríkjaþing um að fallast á áætlun, sem kaupsýslumaðurinn Warren Buffett hefur kynnt um að nýr skattur verði lagður á ríkustu Bandaríkjamennina. Repúblikanar vilja ekki heyra á þessar hugmyndir minnst...."
hvernig væri að byrja að láta þessa auðugu andskota í bandaríkjunum byrja að borga skatt af launum sínum.
"nú"....spyr einhver. þegar þú vinnur í fjármálaheiminum í bandaríkjunum og þénar yfir 108.000 dollara á ári, þá borgar þú ekki skatta af launum þínum. þú hinsvegar borgar um 14% skatt af tekjum sem þú aflar á þeim árum. svokallaður fjármagnstekjuskatt.
gallin er bara sá að í bandaríkjunum, þá dekkar launaskatturin innviði samfélagsins. fjármagnstékjuskatturin fer í eitthvað allt annað. HÉRNA ER ÞAÐ Á SVÖRTU OG HVÍTU....AÐ ALMÚGIN BLÆÐIR SVO "ELÍTAN" GETI GERT ÞAÐ SEM HÚN GERIR.
ef einhver hefur eitthvað við þetta að athuga, þá vinsamlegast horfið á síðasta part í silfri egils frá 15 janúar síðastliðnum. hægt er að sjá þáttin hér að neðan.
http://www.ruv.is/sarpurinn/silfur-egils/15012012
svo er myndin "Inside job" einhver merkilegasta heimild seinni tíma um þessa fjármála-elítu sem maður hélt að væri ekki svona sterk fyrr en allt draslið hrundi.
þetta geta Bandaríkjamenn þakkað Ronald Reagan og hans stjórnartíð (1981-1989) sem hóf Bandaríkin og restina af vesturlöndum á þá braut sem hún er enn þann dag í dag á. Clinton og Bush eldri og yngri héldu svo áfram að láta leiða sig á asnaeyrum allan sinn tíma í hvíta húsinu. og því miður....þá hefur Obama ekkert gert, enda með allt hyskið úr hruninu í æðstu embættum í landinu. Mit Romney kemur heldur ekki til með að gera neitt annað en að hygla sömu stefnu...hann er nú einu sinni afurð þessarra svo kallaðrar Reagan byltingar sem hófst þann 20 janúar 1981
maður hugsar til þess með viðbjóði ef fjármála-elítan á íslandi hefði fengið að fitna eins og hún fékk óáreitt í bandaríkjunum í um þrjátíu ár.
|
Vill byggja upp réttlátt efnahagskerfi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook


gammon
gudni-is
kambodia
runarsv
loopman
apalsson
bofs
oskarsteinno
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.