samstarf fjölmiðlana opinberast með þessari frétt...

...er það eðlilegt að þrír af stærstu fjölmiðlum landsins séu með sömu fréttir nánast upp á staf.  er það Össur sem skrifar fréttirnar fyrir fjölmiðlana....eða hvað er í gangi hérna...!

það hefur löngum verið sagt síðustu árin að fjölmiðillin sé fjórða valdið í löndum hins vestræna heims (valdið sé í raun ekki þrískipt eins og stjórnarskrár kveði á um).  hérna erum við að sjá það svo um munar.  menn eru ekki einu sinni að reyna að fela það.

Blair þorði ekki í fjölmiðlana á sínum tíma, og nú er verið að tækla Murdoch veldið, en kjánalegt nokk, þá horfa hinir fjölmiðlarnir á áhyggjulausir.

en Össur.  það þarf tvo til að dansa tango.....báðar fylkingar, uppreysnaröflin og stjórnin í sýrlandi ættu að verða sett undir rannsókn....en það væri náttúrulega í fullkomnum heimi....ekki í þeim heimi sem þú, össur lifir og hrærist í.  spurning að líta aðeins upp úr minnispunktunum sem NATO herrarnir eru að senda þér...og kanna hvað sé virkilega í gangi í Sýrlandi, eða hvar annarstaðar í heiminum sem þér dettur í hug að stíga niður fæti.


mbl.is Fordæmir voðaverkin í Sýrlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: el-Toro

hérna er svo greinin á visir.is

http://www.visir.is/ossur-fordaemir-vodaverk-syrlenskra-stjornvalda/article/2012120609863

hún er nánast orðrétt miðað við greinina á mbl.is

það hlítur að koma að því að fólk átti sig á hlutverki fjölmiðla, sérstaklega þegar kemur að efnum úr öðrum heimshlutum.  en hlutverk fjölmiðla er að réttlæta aðgerðir gegn löndum sem ekki eru á pari við okkur.

það á ekkert skilt við einhvern sannleik....fjölmiðlar eru stórhættulegt vopn sem valda-elítan hefur yfir að ráða...því við, almennir borgarar, virðumst lesa fjölmiðla eins og boðskap sannleikans.

fólk verður að fara að vakna...og ég veit að sumt fólk hefur þegar áttað sig á þessu.  en betur má ef duga skal...!

el-Toro, 2.6.2012 kl. 11:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband