31.5.2007 | 23:10
helvítis hálfvitar í sjálfstæðisflokknum
jæja, náði ég athygli þinni. gott......!!!!!!!!!!!!!!!!!!! lestu þetta yfir í ró og næði.
í hvaða landi er hagstæðara fyrir fjölskyldu að vera skráð sem einstaklingur???? afríku kannski, veit ekki. barnafólki er hegnað á íslandi fyrir að vera skráð saman hér á landi. útskýring: barnabætur fyrir þá stétt í landinu sem rétt svo kemst yfir hvern mánuð í senn, eru um 4.000.- krónur á barn ef fólk er í sambúð. en yfir 100.000.- á barn ef ef móðirin er skráð einsömul á þriggja mánað fresti. leikskólapláss er helmingi hærra, eða 28.000 fyrir fólk í sambúð eða gift. en helmingi lægra fyrir einstætt foreldri.
sjálfstæðisflokkurinn með davíð og geir við völd halda að allir séu með laun upp á 400.000 að lágmarki á mánuði. það er bara langur vegur frá því. hvernig væri að fara að hysja upp um sig buxurnar og gera ísland að fjölskylduvænu landi. leggja aðeins metnað í að hugsa um almenning. ísland er fáránlega langt á eftir í norðurlöndunum í málefnum fjölskyldunnar. það er afsprengi sjálfstæðisflokksins. og ef hann ætlar sér að komast í ríkisstjórn eftir fjögur ár, að þá er eins gott að málefni fjölskyldunnar í landinu hafi mun meiri forgang hedur en hún hefur haft síðustu tólf árin.
í danmörku getur þú fengið lækkun á sköttum ef þú kaupir bíl, hús, hjólhýsi, mótorhjól og mun fleira. þá lækka skattar á þig meðan þú ert að borga það sem þú kaupir. kemur sér oft á tíðum vel fyrir fólk sem er alltaf að rembast við að ná endum saman í enda mánaðarins.
í svíþjóð eru jafnar greiðslur til enstaklinga og fjölskyldna vegna barnabóta.
geir, davíð og halldór hafa allir átt svo stóran hlut að máli í að gera ísland að einu ófjölskylduvænasta landi í norðanverðri evrópu, ef ekki allri heimsálfuni.
eftir höfðinu dansa limirnir. það er tími til komin að sjálfstæðisflokkurinn fari að láta sig varða almenning í landinu. ekki bara hellvítis uppana sem keyra um á lexus sem þeir kaupa fyrir vikulaun sín.
um 30% landsmanna sem eru að skrimta með tekjur undir 300.000. pétur blöndal mundi sennilega segja að þessi 30% geti sjálfum sér um kennt. gerið þessi 30% að meðlimum í "aukinni velsæld íslensku þjóðarinnar".
ef einhver hefði gott af því að lesa þessa athugasemd, að þá er það Geir H. Haarde.
endilega allir þeir sem eru á sömu skoðun og ég, og hafa eitthvað meira við að bæta, að láta í sér heira. sendu athugasemd. ef allir senda inn að þá kannski nær þetta eyrum herrana og frúnna í stjórnarráðinu.
hækkið skatteysismörkin. hvernig væri að skattleggja þá meira sem eru að fá yfir 600.000. og minka kannski skattheimtu þeirra sem eru með lægstu launin.
![]() |
Meginmarkmið stjórnmála að skapa samfélag þar sem fólki líður vel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ef skattleysismörkin hefðu haldist í hendur við eðlilega þróun væru þau við 142 þús. kr. í dag. Hefðu ekki flestar fjölskyldur á Íslandi gott af því? Hvað varðar barnabætur og leikskólapláss og þess háttar hefur það alltaf borgað sig að "skilja" á pappírunum. Þetta er Ísland í dag og gær.
Ævar Rafn Kjartansson, 31.5.2007 kl. 23:35
akkurat Ævar. fólk neiðist til að skilja á pappírunum til að geta greitt reikningana sína. Ísland er ekkert annað en bananaveldi þegar kemur að fjölskyldunni. fjölskyldan er í öðru sæti hjá sjálfstæðismönnum.
við erum að ræða þetta í málgagni sjálfstæðismanna. látið í ykkur heira.....!
el-Toro, 1.6.2007 kl. 00:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.