13.4.2008 | 13:09
það er munur á.....
svona til að fólk átti sig á orðinu Talibani og hversvegna þeir eru ennþá svona sterkir í suður hluta Afganistan.
Phastun ættflokkurinn er langstærsta þjóðarbrot í afganistan. úr þessum ættflokki koma talibanar. benda má á að phastung ættflokkurinn er sterkur í norður héruðum pakistan líka, enda pakistanar þeir sem stofnuðu talibana flokkin.
stjórnvöld í höfuðborg afganistan og nato og usa hafa lítið sem ekkert gert fyrir þetta fólk. þetta fólk er í vestrænum fjölmiðlum kallað talibanar. sem er skelfileg rangfærsla. allir þeir sem eru frá þessum svæðum í suður afganistan og berjast fyrir betri kjörum, eru túlkaðir sem talibanar af vestrænum yfirvöldum.
talibana flokkurinn er örsmá prósenta af phastun ættflokknum, undir 5%.
miðað við það sem gekk á eftir brotthvarf sovéska hersins 1989, að þá kemur mér ekki á óvart að þessar fjöldagrafir sé frá þeim tímum áður en talibanar komu fram á sjónarsviðið.
en að sjálfsögðu hentar það markmiðum vesturlanda að láta þetta líta út fyrir verk talibana, sem þeir líkja við hina sovésku grýlu kalda stríðsins. enda ráða bandaríkin umfjöllun fjölmiðla vestrænna ríkja.
![]() |
Fjöldagröf fannst í Afganistan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.